
Eldvarnaeftirlitsnámskeið haldið hjá Brunavörnum Árnessýslu í nóvember 2019
Brunavarnir Árnessýslu og Mannvirkjastofnun gerðu með sér samning undir lok síðasta árs að Brunavarnir Árnessýslu myndu endurgera hluta af námsefni eldvarnaeftirlitsmanna á Íslandi. Einnig myndi BÁ halda námskeið númer eitt af þeim þremur námskeiðum sem eldvarnaeftirlitsmenn á landinu þurfa að taka.
Námskeiðið hófst í morgun og verður alla vikuna í Björgunarmiðstöðinni á Selfossi.
Fyrsti fyrirlesari námskeiðsins var Höskuldur Einarsson sem er slökkviliðmönnum landsins vel kunnugur. Höskuldur fór yfir eftirlit með hættulegum efnum auk þess sem nokkrar tilraunir voru gerðar með hættuleg efni.
Alls munu koma um 20 leiðbeinendur að námskeiðinu frá ýmsum aðilum og stofnunum.