Í gærkvöldi ( mánudag) kl. 21,45 hringdi vegfarandi á Selfossi í síma slökkviliðsstjóra og tilkynnti um töluverðan eld í gróðri við Stóra hól á Selfossi. Svæðið við hólinn er mikið gróið og töluvert um sinu á því.
Varðstjóri var fyrstur á staðinn og náði að slökkva eldinn með aðstoð vegfarenda.
Ungir drengir voru að fikta með eld og misstu verkefnið úr höndunum. Töluverður eldur var kominn í sinu og hefði ekki mátt miklu muna að stærra svæði hefði orðið eldi að bráð.