Í dag, 11.2.2015 var tekin í notkun nýr varðstjórabíll hjá Brunavörnum Árnessýslu. Um er að ræða bíl að gerðinni Skoda Superb 4X4 disel, frá Heklu-umboðinu.
Nýi bíllinn leysir af hólmi bíl af gerðinni Subaru frá árinu 2003.
Fjórir varðstjórar skipta með sér vöktum allt árið, viku í senn, er bíllinn ætlaður fyrir þá til að sinna starfi sínu.
Þessi bíll er því nánast alltaf fyrstur á vettvang þegar upp koma verkefni slökkviliðsins.
Hann er búin öllum helstu tækjum sem þurfa að vera í svona bíl.
Múlaradíó í Reykjavík sá um að koma fyrir aukabúnaði í bílinn.
Helsta aðalsmerki þessa bíls eru öryggismerkingar hans, SB-Skiltagerð í Þorlákshöfn sá um það verkefni.
Um er að ræða merkingar sem verið er að taka upp í öllum Evrópulöndum.
Þar er öryggið í fyrsta sæti eins og ávalt en nú með enn meiri áherslu, eins eru blá ljós o. fl. af nýrri og endurbættri gerð.