
Upprifjunarnámskeið í stjórn aðgerða á vettvangi í hópslysi 2.11.2015
Í gærkvöldi 2.nóv hélt Víðir Reynisson lögreglufulltrúi upprifjunarnámskeið fyrir björgunaraðila í stjórn aðgerða á vettvangi í hópslysi. Námskeiðið er annað námskeið í fjögurra námskeiða röð þar sem aðilar frá hinum ýmsu björgunaraðilum í Árnessýslu koma saman til þess að skerpa á þekkingu sinni á þessu sviði. Almannavarnir í Árnessýslu koma að þessu verkefni með Víði Reynisson í fararbroddi. Námskeiðin er haldin í kennslusal Brunavarna Árnessýslu í slökkvistöðinni á Selfossi.